Utanlandsferðir nemenda
á vegum skólans
Skólanámskrá FVA
Utanlandsferðir nemenda á vegum skólans
Erlent samstarf er sívaxandi hluti skólastarfsins. Margir nemendur FVA eiga þess kost að fara í námsferðir og taka á móti erlendum nemendum.
Hér á eftir fara nokkrar grunnreglur sem hafðar eru til hliðsjónar fyrir utanlandsferðir hverju sinni.
- Til að koma til greina sem þátttakendur í utanlandsferðum á vegum FVA verða nemendur að hafa a.m.k. 90% mætingu þegar valið er inn í ferðina.
- Þegar um fjöldatakmarkanir er að ræða eru þeir nemendur valdir til fararinnar sem hafa bestu mætinguna. Jafnfram geta kennarar sett skilyrði varðandi undanfara í ákveðnum greinum.
- Kennarar sem standa fyrir ákveðinni ferð geta í upphafi verkefnisins sett nánari reglur og skilyrði fyrir þátttöku nemenda. Þessar reglur geta til dæmis fjallað um verkefnaskil, hegðun eða aðra þætti.
- Þeir nemendur sem taka þátt þurfa að skrifa undir samning við skólann fyrir brottför þar sem fram koma nánari reglur sem gilda í ferðinni. Ef um ólögráða nemendur er að ræða skrifa forráðamenn einnig undir samninginn. Í ferðum á vegum skólans gilda skólareglur og öll meðferð áfengis og annarra vímuefna er bönnuð.
Samningur sem nemendur skrifa um ferð á vegum skólans
- Nemendur skulu fylgja dagskrá ferðarinnar í hvívetna. Það þýðir að mæta skal á réttum tíma og vera tilbúinn til brottfarar á tilsettum tíma. Allir nemendur hafa útprentað eintak af dagskrá og eins er hún aðgengileg með rafrænum hætti.
- Nemendur skulu fara að fyrirmælum fararstjóra.
- Nemendur skulu vera prúðir í háttum og kurteisir.
- Í skoðunarferðum skulu nemendur sýna fulla athygli enda er um að ræða námsferð.
- Á gistiheimili skulu nemendur ganga vel um og fylgja reglum hússins.
- Eftir kl. 23 á kvöldin má hvorki berast hávaði frá herbergjum né vera með læti á göngum gistiheimilis.
- Nemendur skulu ætið vera komnir heim á gistiheimilið eigi síðar en fararstjórar leyfa. Á gistiheimilinu er sameiginlegt rými sem nemendur geta nýtt sér. Ef valdið er tjóni á eignum gistiheimilisins og búnaði ber tjónavaldi að greiða skaðann.
- Nemendur eru fulltrúar skólans í ferðinni og því gilda skólareglur.
- Brot á reglum verða tilkynnt til skólastjórnenda og geta leitt til áminningar eða brottvikningar úr skóla. Verði nemandi uppvís að ítrekuðum og/eða alvarlegum agabrotum verður hann sendur rakleiðis heim með fyrsta flugi á eigin kostnað.
- Nemendur fara í þessa ferð á eigin ábyrgð. Fjölbrautaskóli Vesturlands og fararstjórar bera ekki ábyrgð á ófyrirséðum atburðum.