fbpx

Nú er hægt að bóka tíma hjá náms- og starfsráðgjöf FVA í gegnum bókunarkerfið Kara Connect og samhliða því verður ekki lengur hægt að bóka tíma í gegnum Innu.

Þessi breyting hefur ýmsa kosti í för með sér:

  • Kerfið býður upp á tímaáminningar og sendir sms fyrir bókaðan tíma
  • Auðvelt að bóka og breyta tímum
  • Hægt er að bóka bæði viðtöl á staðnum eða velja það að fá símtal eða fjarfund
  • Forráðamenn, nýnemar og aðrir sem ekki eru með aðgang að Innu eiga nú auðveldara með að bóka tíma

Viðtalstímar ráðgjafa eru í boði mánudaga til fimmtudaga frá kl. 08:30-15:30 og föstudaga frá kl. 08:30-14:00. Eins og venjulega er líka alltaf velkomið að kíkja við á skrifstofu og athuga hvort ráðgjafi sé laus!

Leiðbeiningar fyrir einstaklinga sem hafa ekki komið áður í gegnum bókunarkerfið:

  1. Smelltu hér – Bóka tíma
  2. Skráðu þig inn í Karaconnect með því skrá netfang og lykilorð
  3. Eftir nýskráningu lendir þú á síðu náms- og starfsráðgjafa FVA
  4. Undir hverjum námsráðgjafa getur þú skoðað dagatalið þeirra og séð lausa tíma.
  5. Smelltu á lausan tíma í dagatalinu sem hentar þér og bókaðu tíma.
  • Ef þú ert að koma í fyrsta skiptið í gegnum Karaconnect þá skráir þú þig hér: Bóka tíma
  • Ef þú hefur áður stofnað aðgang inn á Karaconnect skráir þú þig hér: Innskráður notandi
  • Mælt er með því að nota Chrome vafrann en ekki Safari