Sjúkraliði – Dreifnám
Sjúkraliðanám með vinnu er fjarnám með staðbundnum lotum þar sem nemendur koma í skólann u.þ.b. einn dag í mánuði. Fyrra nám og starfsreynsla við umönnun er metið skv. skólanámskrá. Gert er ráð fyrir að nemendur sem innritast í námið hafi náð 23ja ára aldri. Yngri umsækjendur geta sótt um undanþágu frá aldurskröfu til skólameistara og með þeirri umsókn skal senda upplýsingar um starfsreynslu við umönnun og meðmæli frá a.m.k. einum vinnuveitanda.
Mætingaskylda
Í staðlotum hjá sjúkraliðanemendum er 80% mætingaskylda. Tekið er tilllit til aðstæðna s.s. vegna veðurs eða veikinda. Nemendur tilkynni forföll til skrifstofu skólans og/eða með tölvupósti til kennara.
Sömu námskröfur eru gerðar til allra nemenda skólans og allir nemendur taka sömu próf. Öll lokapróf eru tekin á próftíma skólans (des og maí).
Sótt er um sjúkraliðanám í dreifnámi hér.
Brautarlýsing sjúkraliðabrautar
Áætlun um námsframvindu í dreifnámi á sjúkraliðabraut 2026-2028
Dagsetningar staðlota haustönn 2025
Birt með fyrirvara um breytingar
| 28. ágúst |
| 25. september |
| 23. október |
| 27. nóvember |
| 4. desember |
| Námsmatsdagar 9. – 16. desember |
Áfangar í boði á haustönn 2025
5. önn
HJÚK3ÖH05
LÍOL2IL05
SJÚK2MS05
Dagsetningar staðlota vorönn 2026
Birt með fyrirvara um breytingar
| 15. janúar – fimmtudagur |
| 5. febrúar – fimmtudagur |
| 5. mars – fimmtudagur |
| 16. apríl – fimmtudagur |
| 24. apríl – föstudagur – Kynning lokaverkefna |
| 15. – 22. maí Verkefna og prófadagar |