fbpx

stjórn FVA

Stjórn fjölbrautaskóla Vesturlands

Skólameistari er Steinunn Inga Óttarsdóttir. Skólameistari hefur yfirumsjón með starfsemi skólans, húsum hans og munum og rekstri öllum. Hann ber ábyrgð á að öll starfsemi hans sé í samræmi við lög, reglugerðir og námskrár á hverjum tíma.

Áfangastjóri er Jónína Halla Víglundsdóttir. Áfangastjóri hefur umsjón með rekstri áfangakerfis við skólann. Sér um skráningu upplýsinga um nemendur er innritast í skólann, mat á námi frá öðrum skólum, færslu námsferilsskrár og miðlun slíkra upplýsinga til kennara og skólastjórnenda.

Aðstoðarskólameistari er Dröfn Viðarsdóttir. Aðstoðarskólameistari er staðgengill skólameistara og honum til aðstoðar við daglega stjórn skólans og rekstur.

Fjármálastjóri er Guðrún Lind Gísladóttir. Fjármálastjóri sér um öll fjármál skólans og bókhald. Fjármálastjóri hefur m.a. yfirumsjón með innheimtu þeirra gjalda er nemendum ber að greiða, s.s. innritunargjalda og húsaleigu á heimavist.

Deildarstjórar: Deildarstjórar hafa umsjón með kennslu, námsefni og námskröfum í þeim greinum sem falla undir deildarstjórn hvers og eins. Til þeirra skulu nemendur leita vegna almennra upplýsinga og vandamála er snerta nám í greinum þeirra. Þeir sjá um námsmat úr öðrum skólum ásamt áfangastjóra og aðstoðarskólameistara.

Arndís Halla Guðmundsdóttir – Starfsbraut
Böðvar Eggertsson – Málmiðngreinar
Trausti Gylfason – Rafiðngreinar
Sigríður Ragnarsdóttir – Stærðfræði, tölvufræði, viðskiptagreinar
Birna Björk Sigurgeirsdóttir – Saga, lífsleikni og samfélagsgreinar
Kristinn Guðbrandsson – Tréiðngreinar
Dröfn Guðmundsdóttir  – Erlend tungumál
Kristín Edda Búadóttir – Íslenska og skapandi greinar
Þorbjörg Ragnarsdóttir – Raungreinar, heilbrigðisgreinar, íþróttir

Skólanefnd

Fundargerðir skólanefndar

Skólanefnd – hlutverk og fundir

Frá 10. október 2022 er skólanefnd skipuð til fjögurra ára sem hér segir:

– Aðalmenn án tilnefningar eru: Ellert Jón Björnsson, Þórdís Eva Rúnarsdóttir og Liv Åse Skarstad (formaður).
– Aðalmenn tilnefndir af fulltrúaráði Fjölbrautaskóla Vesturlands fyrir hönd sveitarfélaga eru: Jóhanna M. Þorvaldsdóttir og Ragnheiður Helgadóttir.
– Varamenn án tilnefningar eru: Hjördís Garðarsdóttir, Maren Rós Steindórsdóttir og Guðmundur Reynir Georgsson.
– Varamenn tilnefndir af fulltrúaráði Fjölbrautaskóla Vesturlands fyrir hönd sveitarfélaga eru: Andrea Ýr Arnarsdóttir og Guðlaug Kristinsdóttir.

Áheyrnafulltrúi kennara sem kjörinn var á skólafundi 16. ágúst 2023 er Trausti Gylfason.

Áheyrnarfulltrúi nemenda er Demi van den Berg.

Áheyrnarfulltrúi foreldraráðs er Þórunn Hilma Svavarsdóttir.

Fulltrúaráð

Fulltrúaráð skal vera skólanefnd til ráðuneytis um þjónustu skólans á Vesturlandi og vera tengiliður á milli skólanefndar og sveitarfélaga sem eiga aðild að skólanum. Fulltrúaráð Fjölbrautaskólans skal skipað 12 fulltrúum og 12 til vara. Kjörtímabil fulltrúa sveitarfélaga í fulltrúaráði er fjögur ár og fylgir kjörtímabili sveitarstjórna. Skipting fulltrúa eftir sveitarfélögum er sem hér segir: Akranes 5 fulltrúar og 5 til vara; Borgarbyggð 2 fulltrúar og 2 til vara; Dalabyggð 1 fulltrúi og 1 til vara; Eyja- og Miklaholtshreppur 1 fulltrúi og 1 til vara; Hvalfjarðarsveit 2 fulltrúi og 2 til vara; Skorradalshreppur 1 fulltrúi og 1 til vara.

Sjá nánar um fulltrúaráð í gæðahandbók

Fulltrúaráð skipa:

Benedikt J. Steingrímsson, Guðmann Magnússon, Margrét Helga Ísaksen, Ragnheiður Helgadóttir og Sigrún Ágústa Helgudóttir (Akranes)

Þorvaldur T. Jónsson og Jóhanna Þorvaldsdóttir (Borgarbyggð)

Einar Jón Geirsson (Dalabyggð)

Ástríður Guðmundsdóttir (Skorradalshreppur)

Veronika G. Sigurðardóttir (Eyja- og Miklaholtshreppur)

Andrea Ýr Arnarsdóttir og Birkir Snær Guðlaugsson (Hvalfjarðarsveit).

Steingrímur Benediktsson er áheyrnarfulltrúi kennara í fulltrúaráði skólans og Rán Höskuldsdóttir er til vara.

Skólaráð

Skólaráð skipa tveir kjörnir fulltrúar nemenda, tveir kjörnir fulltrúar kennara, skólameistari, aðstoðarskólameistari og áfangastjóri. Ef ástæða þykir til situr námsráðgjafi fundi skólaráðs sem áheyrandi með málfrelsi og tillögurétt. Skólaráð er samstarfsvettvangur stjórnenda, kennara og nemenda og skal fjalla um innri málefni skólans sem ekki eru sérstaklega falin skólameistara einum eða almennum kennarafundi. Skólaráð fjallar m.a. um brot nemenda á skólareglum og um undanþágur frá skólasóknarreglum, auk þess sem það fjallar um ýmis málefni nemenda sem þeir sækja til skólayfirvalda. Sá sem leggur erindi fyrir skólaráð skal vitja um afgreiðslu þess. Skólaráð starfar samkvæmt lögum um framhaldsskóla og reglugerð frá menntamálaráðuneytinu.

Sjá nánar um skólaráð í gæðahandbók

Fulltrúar kennara í skólaráði:

– Böðvar Eggertsson og Dröfn Guðmundsdóttir

Fulltrúar nemenda í skólaráði:

– í vinnslu