launastefna
Launastefna FVA
Launastefnu Fjölbrautaskóla Vesturlands, Akranesi (FVA) er ætlað að styðja við farsælan rekstur skólans og tekur til alls starfsfólks hans. Skólameistari ber ábyrgð á launastefnu. Hann ber einnig ábyrgð á jafnlaunastefnu FVA og að þeim lagalegu kröfum og öðrum kröfum sem tengjast jafnlaunakerfinu sé framfylgt. Gæðastjóri/verkefnastjóri mannauðsmála sér um innleiðingu á jafnlaunakerfi sem og ber ábyrgð á rýni, viðhaldi og stöðugum úrbótum á því. FVA greiðir laun sem taka mið af þeim kröfum sem starf gerir um menntun, þekkingu, hæfni og ábyrgð í samræmi við starfaflokkun skólans og gildandi kjarasamninga.
- Umfang og eðli starfs hefur áhrif á laun og ræðst af viðmiðum starfaflokkunar samkvæmt jafnlaunakerfi, svo sem menntun, þekkingu, hæfni, ábyrgð, frammistöðu, álagi og persónubundnum þáttum, samkvæmt stofnanasamningi eða öðrum skilgreindum viðmiðum.
- Starfslýsingar skulu vera til fyrir öll störf. Í starfslýsingu koma fram allir meginþættir starfs, s.s. kröfur um menntun, hæfni, reynslu og þá ábyrgð sem í starfinu felst.
- Launaákvarðanir skulu vera í samræmi við launauppbyggingu skólans, byggðar á málefnalegum forsendum, studdar rökum og tryggja að sömu laun séu greidd fyrir sambærileg eða jafnverðmæt störf.
- Skólameistari ber ábyrgð á öllum launaákvörðunum og gætir samræmis við ákvarðanatöku þar um. Hann fer yfir laun alls starfsfólks árlega eða oftar til að tryggja að samræmis sé gætt í launagreiðslum. Starfsfólk getur fengið viðtal við skólameistara um endurskoðun launa. Ákvörðun um launabreytingu skal tryggja samræmi í launasetningu skólans og viðhalda jafnlaunastefnu hans.
- Markmið FVA er að tryggja öllu starfsfólki skólans jöfn laun og sömu kjör fyrir sömu eða jafnverðmæt störf.
14. janúar 2020
Steinunn Inga Óttarsdóttir, skólameistari