fbpx

Nú er opið fyrir val áfanga á haustönn 2022 og verður opið fyrir val til og með 4. mars. Með því að velja áfanga fyrir næstu önn staðfesta nemendur áframhaldandi nám við FVA.

Valið fer fram í Innu, þau sem vilja aðstoð við að skrá eða breyta vali geta haft samband við Jónínu áfangastjóra eða Guðrúnu náms- og starfsráðgjafa. Ekki þarf að bóka tíma hjá þeim, bara mæta. Nýnemar fá aðstoð við valið í umsjónartíma.

Áfangakynning fór fram á sal í gær, en fyrir þau sem misstu af því er upplýsingar um valið að finna hér. Einnig er hægt að skoða auglýsingar fyrir valáfanga á Instagram.