Laust er til umsóknar starf sálfræðings í FVA, 50% starf á næstkomandi skólaári 2023-2024. Möguleiki er á kennslu í sálfræði í 50% starfshlutfalli eða öðrum verkefnum til viðbótar eftir samkomulagi.
FVA er framsækinn og traustur framhaldsskóli á Akranesi, í um 45 mínútna akstursfjarlægð frá höfuðborgarsvæðinu. Skólinn starfar samkvæmt þremur gildum; jafnrétti, virðingu og fjölbreytileika. Nemendur eru um 450 talsins og starfsfólk skólans um 70. Flestir nemendur koma frá Akranesi og nágrannasveitarfélögum og við skólann er starfrækt heimavist. Námsframboð er fjölbreytt bæði í bók- og verknámi og starfsmannahópurinn er kraftmikill og metnaðarfullur. Áhersla er lögð á lýðræðislega kennslu- og stjórnunarhætti og notalegan skólabrag í samræmi við gildi skólans.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Viðtöl, ráðgjöf og fræðsla til nemenda
- Ráðgjöf til starfsfólks skólans
- Samvinna við náms- og starfsráðgjafa og skólahjúkrunarfræðing
- Taka þátt í faglegu samstarfi og upplýsingagjöf
Hæfniskröfur
- BS, Cand. psych-nám í sálfræði eða MSc. í klínískri sálfræði
- Starfsleyfi sem sálfræðingur
- Reynsla af að starfa með ungu fólki er mikilvæg
- Kennslureynsla og leyfisbréf kennara er kostur
- Faglegur metnaður, frumkvæði og jákvætt hugarfar
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sálfræðingafélag Íslands hafa gert.
Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:
- Kynningarbréf þar sem fram kemur hvernig umsækjandi uppfyllir hæfniskröfur
- Ferilskrá
- Afrit af prófskírteinum og leyfisbréfi
- Upplýsingar um umsagnaraðila sem hafa má samband við
Ákvörðun um ráðningu byggir á innsendum gögnum og viðtölum. Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisáætlun FVA við ráðningar í störf við skólann.
Starfshlutfall er 50-100%
Umsóknarfrestur er til og með 01.12.2022
Nánari upplýsingar veitir
Steinunn Inga Óttarsdóttir, skólameistari – steinunn@fva.is – 855 5720
Guðrún Sigríður Guðmundsdóttir, náms- og starfsráðgjafi – gudruns@fva.is – 433 2519