Að brjóta 1000 trönur var verkefni sem þær Borghildur Jósuadóttir og Bryndís Siemsen stóðu fyrir og var styrkt af Menningarsjóði Akraneskaupstaðar. Þátttakendur í verkefninu voru Fjölbrautaskóli Vesturlands, Brekkubæjarskóli, Grundaskóli og Félagsstarf Akraneskaupstaðar. Auk þess hittist hópur á Bókasafni Akraness alla fimmtudaga.
Borghildur og Bryndís buðu upp á vinnustofur á Opnum dögum í FVA 2025 og trönurnar hanga nú á bókasafni skólans. Gaman er að segja frá því að fyrrverandi nemandi skólans, Auður Vestmann, gaf verkefninu 100 trönur sem nú hafa bæst við á bókasafninu. Við þökkum Auði kærlega fyrir þessa gjöf.
Að brjóta 1000 trönur hefur breiðst út um allan heim og byggir á sögunni um litlu stúlkuna Sadako Sasiki sem var tveggja ára þegar sprengjan féll á Hiroshimia (1945). Vegna geislavirkni frá sprengjunni greindist hún 10 árum síðar með hvítblæði, eins og mörg önnur börn. Vinkona hennar færði henni Origami trönu á sjúkrahúsið, táknræna gjöf. Sadako fór þá að brjóta trönur og náði hún að brjóta 640 trönur fyrir dauða sinn. Vinir hennar brutu þær trönur sem vantaði upp í 1000. Í framhaldi af því hófu þeir söfnun fyrir minnismerki. 5. maí árið 1958 var minnismerkið, The Children´s Peace Monument, vígt í friðargarðinum við Hiroshima, Hiroshima Peace Memorial Park. Tranan er orðin friðartákn um allan heim.
Origami er aldagamalt japanskt pappírsbrot og er sérstaklega vinsælt að brjóta trönur, en þær eru heilagir og táknrænir fuglar í Japan og segir þjóðtrúin að með því að brjóta 1000 trönur á einu ári verði ósk manns uppfyllt.



