Þann 19. febrúar er árshátíð nemendafélags FVA, NFFA.
Kvöldverður og skemmtidagskrá á Nítjándu, húsið opnar kl 17.30. Ballið er haldið í sal skólans, frá kl 21 til miðnættis.
Húsið opnar kl 21 og lokar kl 21:30, enginn fer inn á ballið eftir það.
Lögð er mikil áhersla á að árshátíðin takist vel. Afar öflug gæsla er á ballinu og skólareglur gilda. Öll meðferð áfengis og annarra vímuefna er bönnuð og leitað er við innganginn á nemendum að vímugjöfum oþh. Á ballinu gefst nemendum kostur á því að blása í áfengismæli og komast í Edrúpott til að eiga möguleika á glæsilegum útdráttarverðlaunum frá NFFA. Endilega hvetjið ungmenni ykkar til að blása.
Við hvetjum foreldra/forráðamenn nemenda til að ræða forvarnir almennt við ungmennin sín. Eins viljum við beina því til foreldra og forráðamanna nemenda að leyfa ekki eftirlitslaus partý hvorki fyrir né eftir ball.
Ekki hika við að hafa samband ef eitthvað er.
Bestu kveðjur,
Steinunn Inga, skólameistari og
Áslaug, félagsmála- og forvarnarfulltrúi
