Atvikaskráning
Hjá FVA eru skráð öll atvik sem hafa átt sér stað í skólanum, bæði í skólastarfinu og annarri starfsemi, þ.e. slys, óhöpp og atvik þar sem lá við slysi sem varð þó ekki (næstum því slys).
Atvik sem eiga sér stað í félagsstarfi, á samkomum eða í ferðum á vegum skólans falla einnig hér undir.
Skráningin er framkvæmd þegar atvik hefur átt sér stað en viðbrögð við slysum eða óhöppum eru í samræmi við stefnu skólans um öruggt og heilsusamlegt vinnuumhverfi (STE-0010). Starfsmaður skráir atvikið í skráningarformið hér fyrir neðan.
Skráningin (slys/óhapp/næstum því slys (hættulegt tilvik)) fer til öryggistrúnaðarmanna og öryggisvarða, skólameistara, aðstoðarskólameistara og gæðastjóra sem fylgjast með afleiðingum, rýna tildrög og greina mögulegar úrbætur og forvarnir til að efla öryggi í skólanum.
Ef atvikið/slysið leiðir til þess að viðkomandi verði óvinnufær í einn eða fleiri daga umfram þann dag sem atvikið/slysið varð tilkynnir skólameistari það til Vinnueftirlitsins.