Starfsfólk FVA dvaldi nýlega í Róm á Ítalíu þar sem það kynnti sér starfsemi tveggja skóla, í bænum Tivoli og í Róm. Virkilega áhugaverðar heimsóknir þar sem við fengum innsýn inn í kennslu, skólastarf og skipulag náms og gátum borið saman við okkar íslenska skólakerfi.
Auk skólaheimsókna gafst starfsfólki einnig tækifæri til að upplifa sögu, mannlíf og matarmenningu Rómar í yndislegu veðri.






