Í dag, föstudaginn 29. maí 2026, voru 74 nemendur brautskráðir frá Fjölbrautaskóla Vesturlands. Alls hafa 39 nemendur lokið stúdentsprófi af þremur brautum. 8 hafa lokið burtfararprófi úr rafvirkjun og 4 úr vélvirkjun. 12 nemendur luku prófi af sjúkraliðabraut, 1 nemandi lauk námi á framhaldsskólabraut og 2 nemendur útskrifuðust af starfsbraut. 7 nemendur luku viðbótarnámi til stúdentsprófs eftir að hafa lokið iðngrein, 4 nemendur luku viðbótarnámi til stúdentspróf samhliða námi iðngreina eða sjúkraliðanámi.

Dröfn Viðarsdóttir, aðstoðarskólameistari, setti athöfnina og Steinunn Inga Óttarsdóttir skólameistari flutti ávarp.  Í ávarpi sínu sagði hún m.a. að nemendur vildu alvöru nám og kröfur til þroskast og skólar ættu að standa undir þeim kröfum. Kennarar og námsráðgjafar ýttu nemendum stundnum lengra en þeir þyrðu sjálfir en mundu þakka þeim seinna. Loks brýndi hún nemendur til að lesa Laxness í sumarfríinu.í ávarpi sínu ræddi hún m.a. um þær breytingar sem hafa orðið á leiðum til náms með tilkomu tækninnar og gervigreindar en mikilvægt sé að hafa í huga að ekki megi slaka á kröfum til nemenda og þeir geti meira en þeir haldi og hafi trú á.

Tónlistarflutningur við athöfnina var í höndum nemenda. Hljómsveitin Jaðrakan var stofnuð fyrir þetta tilefni og spilaði því í fyrsta skipti saman við útskriftina. Hljómsveitina skipa þau María Erla (söngur), Magnús Ingi (trommur), Ísólfur Darri (söngur og saxófónn), Magnús Ingi (gítar), Aron Snær (bassi) og Matthías Bjarmi (söngur og hljómborð). Þau tóku lögin Mescalin með Ego, Allt er á tjá og tundri með Sálinni hans Jóns míns og Húsið er að gráta með Grafík. Við hlökkum til að fylgjast með þessari efnilegu hljómsveit í framtíðinni.

Finnbogi Rögnvaldsson kennari, sem nú lætur af störfum eftir 34 ár í starfi, flutti ávarp fyrir hönd kennara. Finnbogi fór yfir kennsluferil sinn og þær breytingar sem hafa orðið á þeim tíma, mis skemmtilegar, mis krefjandi og mögulega mis gáfulegar. Hann minnti útskriftarnemendur á að þau væru sjálf við stjórnvölin í sínu lífi og óskaði þeim áframhaldandi velfarnaðar.

Xana Ortis flutti ávarp fyrir hönd útskriftarnema þar sem hún sagði frá upplifun sinni sem nýr nemandi í FVA frá Venesúela. Hún lýsti því hversu vel skólinn tók á móti henni og að mikilvægt er að muna að enginn er einn. Hún brýndi fyrir útskriftarnemum að lífið er ekki keppni, það þarf hver og einn að feta sína braut á sínum hraða og að lykillinn að árangri er agi og staðfesta.

Eftirtaldir nemendur fengu verðlaun og viðurkenningar t.a.m. fyrir ágætan námsárangur og störf að félags- og menningarmálum. Nöfn þeirra sem gefa verðlaun eru innan sviga:

  • Aelita Sheina hlaut viðurkenningu og hvatningu til áframhaldandi náms úr Minningarsjóði Lovísu Hrundar.
  • Arnar Freyr Brynjólfsson hlaut viðurkenningu og hvatningu til áframhaldandi náms úr Minningarsjóði Lovísu Hrundar.
  • Álfrún Embla Hrannarsdóttir fyrir góðan árangur í þýsku (FVA) og íslensku (FVA) og viðurkenningu fyrir störf að félagsmálum úr minningarsjóði Karls Kristins Kristjánssonar.
  • Birgir Örn Jónasson fyrir góðan árangur í ensku (FVA), stærðfræði (Landsbankinn) og  efnafræði (Efnafræðifélagið).
  • Bragi Friðrik Bjarnason fyrir framlag sitt til félagsstarfa (Minningarsjóður KarlsKristins Kristjánssonar).
  • Elísa Nótt Ingadóttir fyrir góðan árangur í ensku (FVA), stærðfræði (Landsbankinn) og raungreinum (Soroptimistafélagið). Einnig hlaut hún Hvatningarverðlaun Háskóla Íslands fyrir frábæran námsárangur og viðurkenningu úr Minningarsjóði Guðmundar P. Bjarnasonar sem Akraneskaupstaður veitir ásamt styrk frá Akraneskaupstað fyrir frábæran námsárangur.
  • Fura Claxton fyrir góðan árangur í stærðfræði (Tölvuþjónustan), íslensku (FVA), efnafræði (Efnafræðifélagið), þýsku og ensku (FVA). Einnig hlaut hún Raungreinaverðlaun Háskólans í Reykjavík og styrk fyrir frábæran námsárangur sem Akraneskaupstaður veitir.
  • Guðrún Julianne Unnarsdóttir hlaut viðurkenningu og hvatningu til áframhaldandi náms úr Minningarsjóði Lovísu Hrundar.
  • Hugrún Stefnisdóttir fyrir góðan árangur í stærðfræði (Norðurál)
  • Hulda Þórunn Ellertsdóttir fyrir framlag sitt til félagsstarfa (Minningarsjóður KarlsKristins Kristjánssonar).
  • Íris Arna Ingvarsdóttir hlaut viðurkenningu og hvatningu til áframhaldandi náms úr Minningarsjóði Lovísu Hrundar.
  • Íris Embla Andradóttir fyrir framlag sitt til félagsstarfa (Minningarsjóður KarlsKristins Kristjánssonar).
  • Ísólfur Darri Rúnarsson fyrir framlag sitt til félagsstarfa (Minningarsjóður KarlsKristins Kristjánssonar).
  • Katla Ingibjörg Tryggvadóttir fyrir góðan árangur í sérgreinum sjúkraliða (FVA).
  • Kolfinna Eir Jónsdóttir fyrir góðan árangur í stærðfræði (Norðurál) og þýsku (FVA).
  • Máni Berg Ellertsson fyrir framlag sitt til félagsstarfa (Minningarsjóður KarlsKristins Kristjánssonar).
  • Rannveig María Gísladóttir fyrir góðan árangur í þýsku (FVA) og myndlist (FVA).
  • Rebekka Eiríksdóttir fyrir góðan árangur í sérgreinum sjúkraliða (FVA).
  • Sunna Arnfinnsdóttir fyrir góðan árangur í íþróttum (FVA) og fyrir framlag sitt til félagsstarfa (Minningarsjóður KarlsKristins Kristjánssonar).
  • Svanfríður Dögg Michaelsdóttir fyrir góðan árangur í stærðfræði (Akraborg), íslensku (FVA), ensku og spænsku (Íslandsbanki).
  • Tinna Rós Halldórsdóttir fyrir góðan árangur í ensku (FVA), íslensku (FVA) og samfélagsgreinum (Sjóvá).
  • Vera Kristín Jónasdóttir fyrir góðan árangur í sérgreinum sjúkraliða (FVA).
  • Víkingur Geirdal Birnuson fyrir góðan árangur í myndlist (FVA).
  • Xana Ortis hlaut viðurkenningu og hvatningu til áframhaldandi náms frá FVA.

Elísa Nótt Ingadóttir hlaut viðurkenningu skólans fyrir bestan námsárangur með meðaleinkunnina 9,59

Myndir væntanlegar frá Blik Studio.

Annáll vorannar 2026