Okkar frábæra Angela er bæjarlistamaður Akraness 2026!
Angela hefur starfað sem myndlistarkennari við FVA síðustu tvö ár og hefur á þeim tíma haft veruleg áhrif á þróun og eflingu greinarinnar innan skólans auk þess að gleðja samstarfsfólk og nemendur sína með eldmóði, hugmyndauðgi og glaðlyndi.
Með nemendum sínum hefur hún tekið þátt í fjölmörgum verkefnum og keppnum með góðum árangri. Þar má nefna 3. sæti í keppninni Umhverfisfréttafólk á vegum Landverndar og 1. sæti í keppni Kennarasambands Íslands fyrir kennsluverkefni á sviði jafnréttismála.
Við hlökkum til að fylgjast með okkar fjölhæfu listakonu halda áfram að lífga upp á bæinn og vinnustaðinn með sinni einstöku nærveru og listsköpun.
Til hamingju elsku Angela!
