Starfsfólk Elkem Íslands heimsótti vélvirkjunardeild skólans og kynnti fyrir nemendum starfsemi fyrirtækisins á Grundartanga.
Fóru þau ítarlega yfir framleiðsluferlið, allt frá hráefnum til fullunninnar afurðar. Sérstök áhersla var lögð á mikilvægi öryggismála og öruggra starfshátta, enda er öryggi starfsfólks haft í fyrirrúmi.
Heimsóknir sem þessar styrkja tengsl nemenda við atvinnulífið og veita þeim dýrmæta innsýn í þau fjölbreyttu verkefni sem bíða þeirra að námi loknu.
Við þökkum Elkem kærlega fyrir fróðlega og áhugaverða kynningu.



