Heimasíða FVA lá tímabundið niðri vegna umfangsmikillar netárásar á hýsingaraðilann 1984. Fjöldi vefja, bæði hér á landi og erlendis, varð óaðgengilegur vegna árásarinnar.
Samkvæmt upplýsingum frá 1984 var um óvenjulega og sérsniðna árás að ræða og var ákveðið að loka kerfum fyrirtækisins tímabundið til að tryggja öryggi gagna viðskiptavina.
Heimasíða FVA er nú aftur aðgengileg og ætti að virka með eðlilegum hætti.
