Atvikaskráning
Hjá FVA eru skráð öll atvik sem hafa átt sér stað í skólanum, bæði í skólastarfinu og annarri starfsemi, þ.e. slys, óhöpp og atvik þar sem lá við slysi sem varð þó ekki (næstum því slys).
Atvik sem eiga sér stað í félagsstarfi, á samkomum eða í ferðum á vegum skólans falla einnig hér undir.
Skráningin er framkvæmd þegar atvik hefur átt sér stað en viðbrögð við slysum eða óhöppum eru í samræmi við stefnu skólans um öruggt og heilsusamlegt vinnuumhverfi.
Tilkynning um skráð atvik (slys/óhapp/næstum því slys (hættulegt tilvik)) fer til öryggistrúnaðarmanna og öryggisvarða, skólameistara, aðstoðarskólameistara og gæðastjóra. Athugun á alvarleika atviks er í þeirra höndum og ber skólameistari ábyrgð á upplýsingamiðlun (s.s. tilkynningu til Vinnueftirlits þegar það á við) og eftirfylgd.