fbpx

Útskriftarhópurinn haustið 2024

Í dag, föstudaginn 20. desember 2024, voru 57 nemendur brautskráðir frá Fjölbrautaskóla Vesturlands. Stór hluti útskriftarnemanna hefur lokið dreifnámi í húsasmíði eða 19 nemendur. Samtals 26 hafa lokið burtfararprófi í húsasmíði, þrír nemendur eru að ljúka bæði burtfararprófi í húsasmíði og viðbótarnámi til stúdentsprófs, einn nemandi lýkur burtfararprófi úr rafvirkjun, tveir ljúka burtfararprófi af sjúkraliðabraut, einn nemandi lýkur burtfararprófi úr vélvirkjun og alls hafa 24 nemendur lokið stúdentsprófi.

Dröfn Viðarsdóttir, aðstoðarskólameistari, setti athöfnina og Steinunn Inga Óttarsdóttir skólameistari flutti ávarp. Nú eru liðin fimm ár frá því hún var skipuð skólameistari FVA. Í ávarpi sínu ræddi hún m.a. um heimsmarkmiðið Menntun fyrir öll. Þá hvatti hún alla viðstadda til að lesa meira og hafa augun opin fyrir tækifærum, segja já þegar þau koma og opna hugann fyrir nýjungum. Einnig nefndi hún að við ættum að fagna því þegar fólk sýnir það hugrekki að halda áfram að reyna, viðurkenna mistök, bæta ráð sitt, breyta lífi sínu og snúa aftur.

Tónlistarflutningur við athöfnina var í höndum nemenda, Ellert Kári Samúelsson rafvirki og nýstúdent lék á selló lagið „Concertion“ eftir Bréval, með honum lék David A. Cutright og Bergþóra Edda Grétarsdóttir söng jólalagið „It’s beginning to look a lot like Christmas“ eftir Meredith Willson.

Sigurgeir Sveinsson sem hóf störf við skólann árið 1988 og lætur af störfum nú um áramótin var færður gjöf sem þakklætisvott.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir alþingismaður og fyrrverandi nemandi skólans flutti ávarp þar sem hún nefndi að hún sjálf stæði á tímamótum líkt og útskriftarnemendur, hvatti nemendur til að spyrja sig hvað þau geta gert fyrir samfélagið sitt en ekki hvað samfélagið geti gert fyrir þau, gaf útskriftarnemendum mörg hollráð og sagði nemendum að lokum að finna hamingjuma og gera gagn.

Rósa Kristín Hafsteinsdóttir flutti ávarp fyrir hönd útskriftarnema þar sem hún þakkaði kennurum, starfsfólki, foreldrum og samnemendum samfygldina í gegnum árin og hvatti útskriftarnemendur til að láta draumana rætast.

Eftirtaldir nemendur fengu verðlaun og viðurkenningar t.a.m. fyrir ágætan námsárangur og störf að félags- og menningarmálum. Nöfn þeirra sem gefa verðlaun eru innan sviga:

  • Anna Katrín Guðráðsdóttir fyrir framlag sitt til umhverfismála og alþjóðlegra samskipta (Íslandsbanki).
  • Ástdís María Guðjónsdóttir hlaut hvatningaverðlaun (Zontaklúbburinn Ugla).
  • Björk Davíðsdóttir fyrir framlag sitt til félagsstarfa (Minningarsjóður Karls Kristins Kristjánssonar).
  • Daníel Darri Ragnarsson fyrir ágætan árangur í þýsku (FVA).
  • Einar Margeir Ágústsson hlaut verðlaun fyrir frábæran árangur í íþróttum á heimsmælikvarða (Penninn)
  • Ellert Kári Samúelsson fyrir góðan árangur í tréiðngreinum (Sjammi) og fyrir ágætan árangur í ensku (Landsbankinn).
  • Eva María Ingvarsdóttir hlaut viðurkenningu og hvatningu til áframhaldandi náms (Minningarsjóður Lovísu Hrundar).
  • Friðrik Arthúr Guðmundsson fyrir góðan árangur í tréiðngreinum (Sjammi).
  • Glóey Ýr Sigurðardóttir hlaut viðurkenningu og hvatningu til áframhaldandi náms (Minningarsjóður Lovísu Hrundar).
  • Helgi Eyjólfsson fyrir góðan árangur í tréiðngreinum (SF smiðir).
  • Magnús Filippus Guðlaugsson fyrir góðan árangur í tréiðngreinum (SF smiðir).
  • Ole Pétur Ahlbrecht fyrir ágætan árangur í stærðfræði (Tölvuþjónustan).
  • Ragnheiður Hjálmarsdóttir fyrir góðan árangur í myndlist (Dýrfinna Torfadóttir).
  • Rósa Kristín Hafsteinsdóttir fyrir framlag sitt til félagsstarfa (Minningarsjóður Karls Kristins Kristjánssonar).
  • Sigurvin Helgi Eyvindsson hlaut viðurkenningu og hvatningu til áframhaldandi náms (Minningarsjóður Lovísu Hrundar).

Ellert Kári Samúelsson hlaut viðurkenningu skólans fyrir bestan námsárangur.