
Útskriftarhópurinn vorið 2025 með skólameistara og aðstoðarskólameistara.
Í dag, miðvikudaginn 28. maí 2025, voru 85 nemendur brautskráðir frá Fjölbrautaskóla Vesturlands af 7 mismunandi námsbrautum. 18 hafa lokið burtfararprófi úr rafvirkjun, 6 nemendur luku bæði burtfararprófi í rafvirkjun og viðbótarnámi til stúdentsprófs. 6 luku burtfararprófi í vélvirkjun. 23 útskrifuðust úr meistaraskólanum. Einn nemandi útskrifaðist af starfsbraut. 36 luku stúdentsprófi af þremur brautum.
Dröfn Viðarsdóttir, aðstoðarskólameistari, setti athöfnina og Steinunn Inga Óttarsdóttir skólameistari flutti ávarp. Í því ræddi hún m.a. um að láta ekki uppeldi og aðstæður skilgreina sig. Einnig nefndi hún mikilvægi þess að hugsa sjálfstætt og kom með góð ráð fyrir nemendur út í lífið. Þetta er stærsti útskriftarhópur amk sl fimm ár. Steinunn Inga bað nýútskrifaða meistara um að vera duglegir að taka nema í læri þar sem það sárvantar faglærða iðnaðarmenn á Íslandi.
Tónlistarflutningur við athöfnina var í höndum nemenda sem tóku þátt í uppsetningu Leiklistarklúbbsins Melló á Gauragang, Anna María Sigurðardóttir söng lagið „Er hann sá rétti?“ og Gunnar Smári Sigurjónsson og Anna María Sigurðardóttir sungu saman lagið „Rómeó og Júlía“ þar sem kemur m.a. fram að ástin sé lífsins tonnatak.
Guðbjarni Sigþórsson flutti ávarp fyrir hönd útskriftarnema þar sem hann þakkaði kennurum og starfsfólki skólans fyrir að hafa trú á nemendum og hvetja þá áfram, og minnti á að þó að tíminn hafi liðið hratt í skólanum hafi þau áorkað miklu. Sigrún Ósk Kristjánsdóttir fyrrverandi nemandi skólans flutti einnig ávarp þar sem hún ráðlagði nemendum að fara eigin leiðir, hafa trú á sér og fylgja hjartanu, ástunda þakklæti, láta ekki höfnun og mótlæti buga sig, skoða heiminn og hafa gaman af lífinu.
Eftirtaldir nemendur fengu verðlaun og viðurkenningar t.a.m. fyrir ágætan námsárangur og störf að félags- og menningarmálum. Nöfn þeirra sem gefa verðlaun eru innan sviga:
- Alex Máni Heiðarsson fyrir góðan árangur í rafiðngreinum (Raf-Pro).
- Anna María Sigurðardóttir fyrir framlag sitt til félagsstarfa (Minningarsjóður Karls Kristins Kristjánssonar).
- Arina Pecorina fyrir góðan árangur í spænsku (Landsbankinn).
- Bergþóra Edda Grétarsdóttir fyrir framlag sitt til félagsstarfa (Minningarsjóður Karls Kristins Kristjánssonar).
- Birna Rún Þórólfsdóttir fyrir ágætan árangur í íslensku (FVA), erlendum tungumálum (Sjóvá) og stærðfræði (Stærðfræðifélagið). Einnig hlaut hún Hvatningaverðlaun Háskóla Íslands fyrir frábæran námsárangur og viðurkenningu úr Minningarsjóði Guðmundar P. Bjarnasonar sem Akraneskaupstaður veitir ásamt styrk frá Akraneskaupstað vegna frábærs námsárangurs.
- Demi van den Berg fyrir framlag sitt til félagsstarfa (Minningarsjóður Karls Kristins Kristjánssonar).
- Ellert Kári Samúelsson fyrir góðan árangur í íslensku (FVA).
- Elvar Ingi Kristjánsson fyrir góðan árangur í rafiðngreinum (Rafnes).
- Freyja Hrönn Jónsdóttir fyrir ágætan árangur í þýsku (Penninn Eymundsson).
- Gissur Snær Sigmundsson fyrir framlag sitt til félagsstarfa (Minningarsjóður Karls Kristins Kristjánssonar).
- Gígja Kristný fyrir góðan árangur í spænsku (Íslandsbanki) og fyrir framlag sitt til félagsstarfa (Minningarsjóður Karls Kristins Kristjánssonar).
- Guðbjarni Sigþórsson framlag sitt til félagsstarfa (Minningarsjóður Karls Kristins Kristjánssonar).
- Guðmundur Valgeirsson Pedersen fyrir ágætan árangur í meistaraskóla FVA (Sjóvá).
- Gunnar Smári Sigurjónsson fyrir framlag sitt til félagsstarfa (Minningarsjóður Karls Kristins Kristjánssonar).
- Íris Petra Jónsdóttir fyrir góðan árangur í félagsfræði (FVA) og spænsku (FVA).
- Karen Káradóttir fyrir góðan árangur í félagsfræði (FVA) og spænsku (Soroptimistafélagið).
- Karen Þorgrímsdóttir fyrir góðan árangur í félagsfræði (FVA), sálfræði (FVA) og erlendum tungumálum (Íslandsbanki).
- Kasper Úlfarsson fyrir ágætan árangur í ensku (FVA).
- Ketill Ingi Guðmundsson hlaut viðurkenningu og hvatningu til áframhaldandi náms úr Minningarsjóði Lovísu Hrundar.
- Krista Bríet Ólafsdóttir hlaut hvatningaverðlaun (Zontaklúbburinn Ugla Akranes).
- Magnea Sindradóttir fyrir ágætan árangur í efnafræði (Efnafræðifélagið), líffræði (FVA), stærðfræði (FVA), íslensku (FVA) og erlendum tungumálum (Danska sendiráðið). Einnig hlaut hún Raungreinaverðlaun Háskólans í Reykjavík og styrk fyrir frábæran námsárangur sem Akraneskaupstaður veitir.
- Nína Guðlaug Rúnarsdóttir hlaut viðurkenningu og hvatningu til áframhaldandi náms úr Minningarsjóði Lovísu Hrundar.
- Tristan Freyr Traustason fyrir ágætan árangur í stærðfræði (Elkem), viðskiptagreinum (Landsbankinn), ensku (Norðurál) og viðurkenningu fyrir störf að félagsmálum úr minningasjóði Karls Kristins Kristjánssonar.
- Valdís Harpa fyrir frábæran árangur í listgreinum (Dýrfinna Torfadóttir).
- Vignir Gauti Guðjónsson fyrir góðan árangur í rafiðngreinum (Tölvuþjónustan).
- Viktor Daði Eggertsson fyrir góðan árangur í rafiðngreinum (FVA).
Magnea Sindradóttir hlaut viðurkenningu skólans fyrir bestan námsárangur með meðaleinkunnina 9,42.

Útskriftarhópurinn úr meistaraskólanum vorið 2025 með skólameistara og aðstoðarskólameistara.

Magnea Sindradóttir dúx FVA vorið 2025 með skólameistara og aðstoðarskólameistara.

Birna Rún Þórólfsdóttir og Magnea Sindradóttir hlutu styrk frá Akraneskaupstað.