fbpx

Í dag er dimission í FVA en þetta framandi orð er komið úr latínu og merkir „að senda burt“. Útskriftarefni kveðja nú kennara sína og starfsfólk skólans og halda burt á vit nýrra ævintýra.

Skólinn bauð til morgunverðar kl 8 í salnum og hópurinn hélt svo suður til Reykjavíkur í sprell.

Gangi ykkur vel og til hamingju með daginn!