fbpx

Erlent samstarf

Verkefnum sem tengjast alþjóðlegu samstarfi á vegum FVA má skipta í eftirfarandi:

  • Nemendaskiptaverkefni og móttaka
  • Undirbúningsheimsóknir kennara vegna nemendaskiptaverkefna
  • Áfangar með borgarferð
  • Heimsóknir erlendra nema og kennara
  • Endurmenntunarnámskeið og skólaheimsóknir kennara

FVA hefur haldið úti verkefnum þar sem nemendum skólans býðst að fara utan. Ýmist er um að ræða verkefni þar sem samstarf er haft við skóla erlendis um nemendaskipti eða áfanga þar sem hluti náms er að skoða erlenda borg. Nemendur hafa sjálfir þurft að standa straum af kostnaði vegna slíkra borgarferða en nemendaskiptaverkefnin eru styrkt af Nordplus eða Erasmus+ áætlun Evrópusambandsins. Árlega berast beiðnir um samstarf og heimsóknir erlendra nemenda og kennara.

Reglur um utanlandsferðir nemenda á vegum skólans

Alþjóðastefna FVA

Alþjóðafulltrúi er Kristín L. Kötterheinrich

FVA er með formlega staðfestingu sem Erasmus-skóli 2022-2027