fbpx

Nemendum og starfsfólki FVA stendur til boða að fara á gosstöðvarnar í rútu (með fyrirvara um hættusvæði og sóttvarnir). Kostar aðeins 1500 kr á mann. Lágmarksþátttaka: 25 manns.

Lagt er af stað frá FVA kl 10, laugardaginn 8. maí. Áætluð heimkoma á Akranes er milli kl 17 og 18. Grímuskylda er í rútunni og við gætum öll að ítrustu smitvörnum eins og við erum vön. 

Nauðsynlegt að vera í góðum gönguskóm og hlýjum fatnaði og hafa með sér nesti. 

Finnbogi og Óskar verða með leiðsögn í ferðinni. Skráning hér til hádegis á fimmtudag.

Verið öll velkomin.

(ljósmynd: Brynjar Ágústsson)