Fimmtudaginn 26. janúar sl. fengu nemendur sjöttu annar í rafvirkjun góðan gest þegar Óskar Frank Guðmundsson, sérfræðingur í rafmagnsöryggisteymi hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun kom í heimsókn. Tilgangur heimsóknarinnar var að kynna nemendum sem eru langt komnir með rafvirkjunarnámið kynningu á hlutverki stofnunarinnar sem er ekki öllum ljós. Kynning Óskars fjallaði m.a. um:
- Almennt rafmagnsöryggi
- Helstu athugasemdir sem koma fram í skoðunum á verkum rafverktaka
- Slys og bruna af völdum rafmagns
- Hvað má og ekki má að loknu sveinsprófi eða á meðan námi stendur
Fyrirlesturinn var afar fróðlegur og fékk Óskar fjölmargar spurningar í lokin en nemendahópurinn virkur og námsfús. Var handsalað að aðili frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun kæmi árlega til að hitta rafvirkjanema sem væru langt komnir með námið sitt.
Rafiðnaðardeildin þakkar Óskari kærlega fyrir fræðandi eftirmiðdag.
![](https://fva.is/wp-content/uploads/2023/01/image.png)
Óskar Frank fer yfir glæru með fimm nauðsynleg öryggisatriði áður en hafin er vinna við raflögn.
![](https://fva.is/wp-content/uploads/2023/01/image-1.png)
Nemendur 6. annar rafvirkjunar; fremsta röð frá vinstri, Anna Lilja Lárusdóttir, Przemyslaw Fiszer, Jóhann Margeir Guðmundsson, Þorgeir Örn Bjarkarson, Guðbrandur Jón Jónsson. Aftasta röð frá vinstri; Ólafur Ían Brynjarsson, Bjarki Brynjarsson, Bergur Breki Stefánsson, Eysteinn Agnar Georgsson, Davíð Ernir Jónsson, Róbert Máni Gunnarsson og Aron Elvar Dagsson.