Í vélvirkjunarnámi fá nemendur að kynnast heimi véla og tæknibúnaðar með verklegri vinnu. Lögð er áhersla á að skilja hvernig vélar eru byggðar upp, hvernig mismunandi kerfi vinna saman og hvernig greina má bilanir. Nemendur fá meðal annars að taka vélar í sundur, skoða íhluti, mæla slit og setja búnað saman á ný. Slík vinna krefst nákvæmni, rökhugsunar og samvinnu. Nemendur læra að lesa í tæknina, spyrja spurninga og finna lausnir, oft með þvi að prófa sig áfram.
Vélvirkjun er því bæði skapandi og krefjandi fag þar sem forvitni og áhugi á tækni fá að njóta sín. Í gegnum verkefnin öðlast nemendur dýrmæta reynslu sem nýtist þeim vel í áframhaldandi námi og starfi í iðnaði.



