Iðnmeistaranám
Iðnmeistaranám nær til náms í stjórnunar- og rekstrargreinum ásamt fagtengdu námi þar sem það á við. Námið miðar að því að nemendur verði hæfir til að reka fyrirtæki skv. 10. grein iðnaðarlaga nr. 42/1978 og færir um að sjá um leiðsögn og kennslu iðnnema í eigin iðngrein. Hver einstaklingur getur leyst til sín meistarabréf að fullnægðum skilyrðum 3. gr. laganna; að loknu sveinsprófi ásamt því að hafa unnið undir stjórn meistara í eitt ár minnst frá því að sveinsprófi var lokið og jafnframt að loknu meistaraprófi í iðninni frá meistaraskóla. Meistarabréf veitir meistara leyfi til að reka þá iðngrein er meistarabréf tekur til. Inntökuskilyrði fyrir nám á brautinni er að hafa staðist sveinspróf.
Prentvæn útgáfa
Nánari brautarlýsing í námsskrárgrunni
Upplýsingar um dreifnám
Áfangar í iðnmeistaranámi (MEIS):
| A-hluti 27 einingar | |
| Aðferðir verkefnastjórnunar | MVST4MS02 |
| Almenn lögfræði og reglugerðir | MLÖR4MS02 |
| Bókhald | MBÓK4MS03 |
| Grunnur að gæðahandbók | MGHA4MS02 |
| Kennsla og leiðsögn | MKEN4MS05 |
| Launa- og verkbókhald | MBÓK4MS02 |
| Mannauðsstjórnun | MMAN4MS02 |
| Rekstrarfræði | MREK4MS03 |
| Stofnun og stefnumótun fyrirtækis | MSSF4MS02 |
| Sölu- og markaðsmál | MSÖL4MS02 |
| Lokaverkefni A-hluta | MLOK4MS02 |
| B-hluti 11 einingar | |
| Gæðastýring | MGHA4MS02B |
| Verklýsingar og tilboðsgerð | MVRB4MS02B |
| Vöruþróun | MVÖÞ4MS02B |
| Öryggis- og umhverfismál | MÖRU4MS02B |
| Lokaverkefni B-hluta | MLOK4MS02B |
|
Pakkaval fyrir rafvirkja 30 einingar, kennt í Rafmennt |
|||||
|
Pakkaval fyrir húsasmíði, pípulagnir, múrsmíði og blikkara (ekki kennt í FVA) Efnisfræði og burðarþol Lögfræði og reglugerðir Verklýsingar og tilboðsgerð
|
|
3 2 3 |
|||
|
Viðbót fyrir vélvirkja, stálsmíði og rennismiði (ekki kennt í FVA) 8 einingar í vali í faggrein |
|||||
