fbpx

Hjá FVA eru lausar tvær stöður kennara í rafiðngreinum. Um er að ræða kennslu á næstkomandi skólaári 2021-2022. Möguleiki er á áframhaldandi ráðningu. FVA er framsækinn og traustur framhaldsskóli sem starfar samkvæmt þremur gildum; jafnrétti, virðingu og fjölbreytileika. Nemendur eru tæplega 500 og starfsfólk skólans um 70. Flestir nemendur koma frá Akranesi og nágrannasveitarfélögum og við skólann er starfrækt heimavist. Námsframboð er fjölbreytt bæði í bók- og verknámi og starfsmannahópurinn er kraftmikill og metnaðarfullur. Áhersla er lögð á lýðræðislega kennslu- og stjórnunarhætti og notalegan skólabrag í samræmi við gildi skólans.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Kennarinn ber ábyrgð á undirbúningi kennslu, kennslu og námsmati í greininni
  • Hlutast til um að skapa hvetjandi námsumhverfi
  • Tekur þátt í faglegu samstarfi, tileinkar sér nýjungar og sinnir starfsþróun

Hæfniskröfur

  • Iðnmeistarapróf í rafiðn
  • Leyfisbréf sem veitir rétt til að nota starfsheitið kennari sbr. lög nr. 95/2019
  • Kennslureynsla eða leiðsögn til annarra í starfi er mikilvæg
  • Faglegur metnaður, frumkvæði, öguð vinnubrögð og jákvætt hugarfar
  • Mjög góð hæfni í samskiptum og ríkur samstarfsvilji

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Kennarasamband Íslands hafa gert.

Umsókn skal fylgja náms- og starfsferilsskrá ásamt kynningarbréfi, afrit af prófskírteinum og leyfisbréfi kennara. Tilgreina skal meðmælendur. Ákvörðun um ráðningu byggir á innsendum gögnum og viðtölum. Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisáætlun FVA við ráðningar í störf við skólann.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 17.05.2021

Nánari upplýsingar veitir

Steinunn Inga Óttarsdóttir – steinunn@fva.is – 433 2500
Eiríkur Guðmundsson – eirikurg@fva.is – 8611562

Auglýsingin á Starfatorgi

Smelltu hér til að sækja um starfið