Þriðjudaginn 14. apríl verður kynning fyrir nemendur tíundu bekkja Brekkubæjarskóla, Grundaskóla og Heiðarskóla. Nemendur fá kynningu á námsframboði og félagslífi skólans, fara kynningarhring um skólann, fá pizzu & franskar í hádegismat og að lokum verða þau leyst út með veglegri gjöf.

Þriðjudaginn 21. apríl er síðan opið hús í FVA fyrir foreldra, forráðafólk og önnur áhugasöm. Stjórnendur og deildarstjórar verða til viðtals, kynnisferðir um aðstöðuna ofl.

Verið hjartanlega velkomin!