Miðannarmat er í gangi en kennarar gefa um miðbik annar stutta umsögn í INNU um hvern nemanda. Opnað er fyrir niðurstöður matsins fyrir nemendur og forráðamenn áður en kennsla hefst, að morgni þriðjudagsins 24. febrúar. Mikilvægt er að skoða miðannarmatið sem gefur stöðu nemendans það sem af er önninni til kynna.
Til að sjá matið í INNU er valið Námið og þar undir Einkunnir.
Forráðamenn eru hvattir til að skoða miðannarmatið vel. Nemendur eru hvattir til að taka til sín hrós og hvatningu og alla tilsögn um það sem betur má fara í náminu.
Ekki er kennt skv stundatöflu þann 19. febrúar en ef kennari boðar þig í námsmat er skyldumæting.
