Námsáætlanir og val
NEMENDUR
STARFSMENN
ÁFANGAR Í BOÐI
Um miðbik hverrar annar þurfa nemendur að velja áfanga fyrir næstu önn. Með vali sínu staðfesta nemendur að þeir ætli að stunda nám við skólann á næstu önn.
Nemendur sem vilja skrá eða breyta vali geta haft samband við áfangastjóra eða náms- og starfsráðgjöf. Nýnemar velja í umsjónartíma.
Valkynningar fara fram á sal skólans – Fylgist með hér og á Instagram.
Leiðbeiningar fyrir val á bóknámsbrautum
Nemendur á stúdentsbrautum þurfa að huga tímanlega að því að velja áfanga í vali á brautunum.
- Félagsfræðabraut: 20 einingar í vali í samfélagsgreinum og 20 einingar í vali í bóklegum greinum.
- Náttúrufræðabraut: 20 einingar í vali í raungreinum, stærðfræði og tölvugreinum og 15 einingar í vali í bóklegum greinum.
- Nemendur á opinni stúdentsbraut sem hafa ekki valið sér svið eiga að panta tíma hjá náms- og starfsráðgjafa til að velja svið og fara yfir námsáætlun.
Nemendur sem eru fæddir árið 2004 eiga að velja ÍÞRÓ1ÍA01.
Upplýsingar um röð áfanga á stúdentsbrautum má finna hér.
Sýnishorn af ýmsum námsætlunum fyrir brautir skólans:
Félagsfræðabraut | xls pdf |
Félagsfræðabraut með afreksíþróttasviði | xls pdf |
Framhaldsskólabraut | xls pdf |
Náttúrufræðabraut | xls pdf |
Náttúrufræðabraut með afreksíþróttasviði | xls pdf |
Opin stúdentsbraut með íþrótta- og heilsusviði | xls pdf |
Opin stúdentsbr. með íþrótta- og heilsusviði og afreksíþróttasviði | xls pdf |
Opin stúdentsbraut með tungumálasviði | xls pdf |
Opin stúdentsbraut með opnu sviði | xls pdf |
Opin stúdentsbraut með viðskipta- og hagfræðisviði | xls pdf |
Leiðbeiningar fyrir val á iðnbrautum
Auk áfanga sem hér eru taldir velja nemendur stærðfræði, íslensku, dönsku, ensku, lífsleikni og íþróttir. Fjöldi áfanga og hvaða áfangar nemandi tekur fer eftir námshraða hvers og eins.
Nemendur á iðnbrautum þurfa að fylgja því skipulagi sem hér er lýst ef þeir ætla að ljúka brautinni á jafnmörgum önnum og miðað er við í námskrá.
Rafvirkjun (RAF) –Væntanlegt
Húsasmíði (HÚS) –Væntanlegt
Vélvirkjun (VS8), Grunnnám bíliðngreina (GB) og Grunnnám málmiðngreina (MG) –Væntanlegt
Stúdentspróf eftir iðnnám
Öllum sem ljúka iðnnámi gefst kostur á viðbótarnámi til stúdentsprófs. Lýsingu á viðbótarnáminu má finna hér:
Nemendur sem ætla að ljúka iðnnámi og stúdentsprófi á 8 til 9 önnum þurfa að skipuleggja nám sitt a.m.k. frá þriðju önn með það fyrir augum að komast áleiðis í bóklegum greinum (eins og íslensku, ensku og stærðfræði) samhliða iðnnáminu. Best er að vinna þetta skipulag í samráði við námsráðgjafa eða áfangastjóra.