fbpx

Á morgun og föstudag er haldið svokallað barnaþing hjá Akraneskaupstað sem er vettvangur fyrir börn og ungmenni á svæðinu til að koma saman og ræða málefni sem á þeim brenna. Þar fær unga fólkið tækifæri til að tjá skoðanir og viðhorf til sveitarfélagsins og þeirrar þjónustu sem það veitir. Alls eru 16 nemendur FVA fulltrúar á þessu þingi.

Barnaþingið er hluti af verkefninu Barnvænt sveitarfélag sem Akraneskaupstaður vinnur í samstarfi við Unicef á Íslandi. Pælt verður í mörgu: Hvað er t.d Barnasáttmáli og Ungmennaráð, farsældarlög, hvað eru mannréttindi og hvernig fær maður þau?