fbpx

Til foreldra / forráðamanna nemenda í FVA

Á morgun 9. nóvember, er árlegt Skammhlaup í skólanum með tilheyrandi fjöri. Síðan er dansleikur á vegum nemendafélagsins um kvöldið. Ballið er haldið í sal skólans, frá kl 21 til miðnættis.


Húsið opnar kl 21 og lokar kl 21:30, enginn fer inn á ballið eftir það. Ekki er heimilt að hafa með sér drykki, lyf, tóbak, nikótínvörur eða þess háttar inn á ballið, allt slíkt er gert upptækt við innganginn.

Við leggjum mikla áherslu á að dansleikir á vegum skólans takist vel.  Öll meðferð áfengis og annarra vímuefna er bönnuð. Á ballinu mun nemendum gefast kostur á því að blása í áfengismæli og komast í Edrúpott til að eiga möguleika á glæsilegum útdráttarverðlaunum frá NFFA.

Við hvetjum foreldra/forráðamenn nemenda til að ræða forvarnir við ungmennin sín og gerum við það einnig í skólanum.  Eins viljum við beina því til foreldra og forráðamanna nemenda að leyfa ekki eftirlitslaus partý hvorki fyrir né eftir ball.