Öryggisnefnd
Öryggistrúnaðarmenn – Öryggisverðir – Öryggisnefnd
Guðrún L. Gísladóttir
öryggistrúnaðarmaður
frá ágúst 2022 til des 2024
gudrung@fva.is
Trausti Gylfason
öryggistrúnaðarmaður
frá jan 2022 til des 2024
trausti@fva.is
Hörður Hallgrímsson
öryggisvörður
frá jan 2022 til des 2024
hordurhall@fva.is
Leó Ragnarsson
öryggisvörður
frá jan 2022 til des 2024
leor@fva.is
Öryggistrúnaðarmenn
– Eru kosnir af starfsmönnum (undirbúið og framkvæmt af félagslegum trúnaðarmönnum), að jafnaði til tveggja ára í senn og eru þeir jafnframt vinnuverndarfulltrúar. Þeir sinna vinnuvernd í samvinnu við öryggisverði.
Öryggisverðir
– Eru skipaðir af atvinnurekanda, að jafnaði til tveggja ára í senn, og eru þeir jafnframt vinnuverndarfulltrúar. Þeir sinna vinnuvernd í samvinnu við öryggistrúnaðarmenn.
Öryggisnefnd
– Samanstendur af öryggistrúnaðarmönnum og öryggisvörðum sem fylgjast með því að aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustað séu í samræmi við vinnuverndarlög nr. 46/1980. Nefndin kýs sér sjálf formann og ritara og skulu þeir til skiptis vera úr röðum öryggistrúnaðarmanna og öryggisvarða. Öryggisnefndin heldur fundi eins oft og hún sjálf telur þörf á en þó eigi sjaldnar en fjórum sinnum á ári og tekur til umfjöllunar mál er varða aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum.
Hlutverk og verkefni öryggisnefndar er skýrt í reglugerð nr. 920/2006 um skipulag og framkvæmd vinnuverndarstarfs á vinnustöðum, einkum í IV. og V. kafla. Helstu verkefni:
- Fylgjast með því að tækjabúnaður, hættuleg efni og starfsaðferðir stofni ekki lífi og heilsu starfsfólks í hættu og að öryggisbúnaður sé til staðar og í góðu ástandi.
- Taka til umfjöllunar mál er varða aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustaðnum og koma með tillögur að úrbótum.
- Koma að gerð áætlana er varða vá og taka þátt í gerð „áætlunar um öryggi og heilbrigði á vinnustað“ (áhættumat starfa og áhættumat tengt viðbragðsáætlun FVA) og fylgjast með hvernig henni er framfylgt.
- Eiga frumkvæði að fræðslustarfi eins og t.d. skyndihjálparnámskeiðum.
- Gæta að því að ekki viðgangist ámælisverð eða síendurtekin ótilhlýðileg háttsemi á vinnustaðnum.
- Fylgjast með því að skráningu slysa sé sinnt.