fbpx

Með þeirri breytingu sem heilbrigðisráðherra hefur nú ákveðið verður sóttkví og smitgát með eftirfarandi hætti:

  • Sóttkví verður fyrir þá sem eru útsettir á heimili.
    • Skilyrði sóttkvíar verða óbreytt, þ.e. aðskilnaður frá öðrum í fimm daga og PCR-próf til að losna.
    • Ef ekki er viðhafður fullur aðskilnaður frá smituðum á heimili lýkur sóttkví með PCR-prófi degi eftir að sá smitaði útskrifast, eins og verið hefur.
    • Þríbólusettir (smit telur sem ein bólusetning) á heimili fara þó í smitgát í stað sóttkvíar, sbr. að neðan, sem lýkur með PCR-prófi á fimmta degi. 
  • Smitgát verður fyrir þá sem eru útsettir utan heimilis.
    • Í smitgát skal viðkomandi bera grímu í margmenni og þegar ekki verður hægt að viðhafa tveggja metra nándarreglu, úti sem inni. Forðast skal mannmarga staði og sleppa umgengni við viðkvæma einstaklinga.
    • Smitgát þarf að viðhafa í fimm daga og ekki þarf sýnatöku til að losna, sbr. þó þríbólusetta sem eru útsettir á heimili.

OKKAR EIGIN SÓTTVARNIR, ÓBREYTTAR: Við sprittum fyrst og setjum svo upp grímuna! Höfum grímuna fyrir nefi og munni. Sprittum og sótthreinsum snertifleti. Þvoum hendur!