Hefð er fyrir því að halda stærðfræðikeppni í FVA fyrir nemendur í efstu bekkjum grunnskóla á Vesturlandi. Keppnin er haldin í FVA föstudaginn 20. mars og hefst kl 14. Öllum þátttakendum er boðið í pizzu að keppni lokinni.

Nemendur í 10 efstu sætunum í prófinu í hverjum árgangi koma síðan í verðlaunaafhendingu laugardaginn 18. apríl kl. 11 í sal skólans þar sem þeir fá viðurkenningarskjal og þrír efstu í hverjum árgangi fá verðlaun. Lausnir verða birtar eftir keppnina.