Jafnréttisdagur er haldinn í fyrsta sinn í FVA 12. febrúar, en ákveðið hefur verið að dagurinn verði árlegur hér eftir.
Jafnrétti er eitt af þremur gildum FVA. Við erum með formlega jafnréttisstefnu og gerum jafnréttisáætlun.
Bryndís Gylfadóttir náms- og starfsráðgjafi er jafnréttisfulltrúi skólans, öllum er velkomið að leita til hennar varðandi jafnrétti.
