Það styttist í frumsýningu!

Leiklistarklúbburinn Melló hefur undanfarnar vikur æft stíft í Bíóhöllinni undir styrkri stjórn Einars Viðarssonar. Söngleikurinn Hvar er draumurinn? eftir Höskuld Þór Jónsson er kraftmikil, hjartnæm og sprenghlægileg sýning. Lög sýningarinnar ættu öllum að vera kunnug, en þau eru eftir hljómsveitina Sálina hans Jóns míns.

Miðasala á midix.is