Fræðsluþing framhaldsskólanna þriggja á Vesturlandi verður haldið í fyrsta sinn, í FVA á miðvikudaginn, 27. maí. Yfirskriftin er Framtak og forvitni. Málstofur um nám og kennslu verða haldnar á vegum hvers skóla milli kl 10 og 14. Viðburðurinn er liður í kjarasamningsbundinni starfsþróun kennara og starfsþróunarteymi skólanna þriggja vinna saman að útfærslunni. Hugmyndin er að hver skólanna haldi síðan áþekkt þing á tveggja ára fresti þar sem við miðlum af reynslu og þekkingu og lærum hvert af öðru.