Í mars var gerð þjónustukönnun meðal nemenda FVA. Könnunin tók til þess hvað nemendum finnst um þjónustuna sem skólinn veitir. Könnunin var lögð fyrir 378 nemendur dagskóla en 220 svöruðu.

Meðal þess sem kom fram var að 40% nemenda koma aldrei á bókasafnið. Þau 60% sem koma þangað er afskaplega ánægð með þjónustuna en sumum finnst of mikil læti þar í ´09. Mikil ánægja er með mötuneytið og skrifstofuna. Viðmót stjórnenda fær fína einkunn en 50% þurfa aldrei að leita til þeirra. Fleiri mættu nýta sér tölvuþjónustuna (hjalp@fva.is) sem svarar öllum fyrirspurnum hratt og vel. 

Stoðteymið í heild fékk afar góðar niðurstöður úr könnuninni. Nemendum finnst gott og gagnlegt að leita þangað og það er auðvelt að bóka og fá tíma.

Fram kom að helmingur svarenda les fréttabréfið Skrudduna, þarna er rými fyrir bætingu! Spurt var um samfélagsmiðlana og flestir þeirra sem svöruðu fylgja fjolbraut, nffagram og listafva á instagram. 

Margar hugmyndir komu fram varðandi félagslífið og viðburði i skólanum og hafa niðurstöðurnar verið kynntar stjórn NFFA. Til dæmis karókí, kaffihús, kósíkvöld, spilakvöld, bíó, bingó, íþróttamót, námskeið, meira í Hvíta húsinu, hárkolluball og grímuball, vökunótt, lan og tölvuleiki. Hér er úr nógu að moða fyrir næstu stjórn sem verður kosin ´á næstu dögum. 

Búið er að kynna niðurstöður könnunarinnar fyrir öllum þjónustuaðilum sem vinna með þær áfram. Takk öll fyrir þátttökuna, hún er mikilvæg!