Miðstöð menntunar og skólaþjónustu hefur gefið út tímalínu fyrir úrvinnslu umsókna nýnema í framhaldsskóla landsins fyrir haustið 2026. Innritun á starfs- og sérnámsbrautir er lokið.
• 8. júní: Einkunnir sóttar úr námsumsjónarkerfi grunnskóla
• 10. júní: Lokað fyrir umsóknir
• 11.–12. júní: Úrvinnsla læst hjá framhaldsskólum
• 15.–18. júní: Úrvinnsla hjá MMS
• 19. júní: Svör birt nýnemum á stafrænu Íslandi
Nánari upplýsingar á skrifstofu skólans.
Velkomin í Fjölbraut, þar sem fjörið er!
