Angela Árnadóttir myndlistarkennari er fulltrúi FVA á Menntakviku í ár. Menntakvika er stærsta ráðstefna ársins í menntavísindum. Markmið Menntakviku er að kynna og miðla því sem efst er á baugi í menntavísindum og tengdum sviðum hverju sinni.

Angela verður með erindi sem hún nefnir: „Listrannsókn sem kennsluaðferð til að virkja nemendur: Nemendur sem aðgerðarsinnar í jafnréttismálum“. Málstofan sem Angela er í hefst kl 12.15 og er í stofu S217 í Sögu við Háskólatorg. Líka hægt að fylgjast með á zoom!

„Hugmyndin að þessari kennsluaðferð kviknaði í störfum mínum í samstarfsnefnd um skólaþróun í FVA. Mér fannst undirliggjandi vandi kennara á faggreinastigum liggja í hvernig virkja mætti nemendur til áhuga og virkni.„

Aðferðir listrannsókna eru þekktar á 20. öldinni meðal listamanna. Byggir aðferðin á að listamaðurinn rannsakar ákveðið viðfangsefni og leitar í forvitni sinni á viðfangsefninu lengra innan þess án þess að vera með fyrirfram ákveðna niðurstöðu í huga. Rannsakandinn/listamaðurinn fer af stað í einskonar leit með áhuga og forvitni sem sín aðal vopn. Markmið hans er að læra um efnið en hann er ekki með fyrirfram ákveðna hugmynd að afurð. Afurð rannsókna hans verður síðan listræn afurð sem endurspeglar það sem listamaðurinn lærði í ferlinu. Ferlið sjálft og mistökin sem koma upp innan þess verða því oft stór partur af lokaniðurstöðum rannsóknar. Lokaafurð listrannsóknar getur því legið í annarri spurningu eða þá borið upp nýtt sjónarhorn á eitthvert tiltekið deilumál í stað þess að svara rannsóknarspurningu. Þessi grunnhugsunarháttur sem beitt er í svona listrannsókn er sett upp í hagnýtt kennsluverkefni í verkefninu Listrannsókn sem kennsluaðferð til að virkja nemendur: Nemendur sem aðgerðarsinnar í jafnréttismálum og er hún sett í kennsluverkefni sem kennari getur unnið með þvert á námsgreinar. Erindið fer yfir það hvernig slíkt kennsluverkefni lítur út og hvað kennara ber að hafa í huga þegar það er notað í kennslu. Áherslan og markmiðið er í þessu verkefni 100% á námsviljann, áhugann og forvitnina og á sama tíma er enginn afsláttur gefinn af aga, vinnusemi og námsáhuga.