
Í dag er WestSide, íþróttamót, spurningakeppni og ball sem framhaldsskólar á Vesturlandi skiptast á um að halda hátíðlegt. Farið er frá FVA kl 14 í dag með rútu. Hægt að velja um að koma heim eftir keppnina eða eftir ballið. Skólareglur gilda og leitað er í töskum og bakpokum áður en farið er af stað.
Nemendur sem fara í ferðina fá leyfi frá kl 13.05 í dag.Fréttabréfið Skruddan var að koma út, þar er m.a. að finna slóð á helstu niðurstöður af samtalinu sl laugardag (talasaman.is) – takk þið sem tókuð þátt og lögðuð orð í belg! Minnt er á viðveru stoðteymisins og námsaðstoðina hjá Veru í Verinu einu sinni í viku – ekki missa af því.
Framundan er miðannarmat þar sem kennarar gefa umsögn um námsstöðuna þegar önnin er hálfnuð. Á föstudaginn nk mæta aðeins þeir nemendur sem kennari kallar í til námsmats eða verkefnavinnu.
Svo er vetrarfrí í FVA á mánudag og þriðjudag.
Sjáumst hress eftir fríið!