Miðannarmat fer af stað í vikulokin en kennarar gefa um miðbik annar stutta umsögn í INNU um hvern nemanda. Dagana 19. og 20. október er vetrarfrí í FVA. Opnað er fyrir niðurstöður matsins fyrir nemendur og forráðamenn áður en kennsla hefst, að morgni miðvikudagsins 21. október. Mikilvægt er að skoða miðannarmatið sem gefur stöðu nemendans það sem af er önninni til kynna.

Til að sjá matið í INNU er valið Námið og þar undir Einkunnir.

 A = Afar góð staða í áfanganum

G = Góð staða í áfanganum

S = Sæmileg staða í áfanganum

Ó = Óviðunandi staða í áfanganum

Forráðamenn eru hvattir til að skoða miðannarmatið vel. Nemendur eru hvattir til að taka til sín hrós og hvatningu og alla tilsögn um það sem betur má fara í náminu.

Ekki er kennt skv stundatöflu þann 16. október en ef kennari boðar þig í námsmat er skyldumæting.

Sýna minna