Föstudaginn 16. október er miðannarmat. Þann dag er ekki kennt skv. stundaskrá.
19. og 20. október er vetrarfrí í skólanum.
Miðvikudaginn 21. október verður bleikur dagur í FVA. Á Bleika deginum hvetjum við öll til að klæðast bleiku og lýsa skammdegið upp í bleikum ljóma svo allar konur sem greinst hafa með krabbamein finni stuðning okkar og samstöðu.
Njótið vel í vetrarfríinu, við sjáumst endurnærð í bleiku miðvikudaginn 21. október.
