Í dag var brautskráning frá FVA þrátt fyrir ófærð og illviðri. Alls útskrifuðust 54 nemendur frá skólanum af sex námsbrautum.
19 útskriftarnemendur luku burtfararprófi í húsasmíði, einn nemandi lauk bæði burtfararprófi í húsasmíði og viðbótarnámi til stúdentsprófs. Sjö luku burtfararprófi úr rafvirkjun, tveir nemandur luku bæði burtfararprófi í rafvirkjun og viðbótarnámi til stúdentsprófs. 18 luku burtfararprófi af sjúkraliðabraut, einn nemandi lauk burtfararprófi úr vélvirkjun og alls 8 nemendur luku stúdentsprófi. Kristinn Benedikt Gross Hannesson lauk námi í rafvirkjun með glæsilegum árangri á öllum sviðum og tók á móti viðurkenningu frá skólanum.
Tónlistarskóli Akraness, Matthías Matthíasson og Hallgrímur Ólafsson fluttu tónlist við athöfnina og fulltrúi útskriftarnema, Anita Ruebberdt, nýútskrifaður húsasmiður, hélt ræðu.
Innilega til hamingju öll með daginn ykkar!
Annáll er alltaf skrifaður á hverri önn, hann er kominn á vef skólans og þar má lesa um það helsta sem á dagana hefur drifið á haustönninni hjá okkur.
Í ræðu sinni við brautskráninguna talaði skólameistari um þrennt sem hver og einn getur gert til að gera heiminn aðeins betri fyrir okkur öll.
Eftirtaldir nemendur fengu viðurkenningu fyrir góðan námsárangur og dugnað í námi:
Andri Þór Einarsson, viðurkenning frá Íslandsbanka
Árni Salvar Heimisson, viðurkenning frá Tölvuþjónustunni
Bragi Benteinsson, viðurkenning frá FVA
Daníel Friðriksson, viðurkenning frá SF smiðum
Daníel Ingi Ragnarsson, viðurkenning frá Sjóvá
Einar Jóhannes Ingvason, viðurkenning frá SF smiðum
Elín Björg Jónsdóttir, viðurkenning frá Soroptimistaklúbbi Akraness
Grímur Kristinsson, viðurkenning frá BM Vallá
Hilmar Ásu Hansson Jensen, viðurkenning frá FVA
Kristinn Benedikt Gross Hannesson, viðurkenning frá Verkalýðsfélagi Akraness og Pennanum Eymundsson
Tómas Beck, viðurkenning frá Trésmiðjunni Akri