fbpx

Útskriftarhópurinn vorið 2024 með skólameistara og aðstoðarskólameistara.

Í dag, föstudaginn 24. maí 2024, voru 78 nemendur brautskráðir frá Fjölbrautaskóla Vesturlands af 9 mismunandi námsbrautum. 15 hafa lokið burtfararprófi úr rafvirkjun, einn nemandi er að ljúka bæði burtfararprófi í rafvirkjun og viðbótarnámi til stúdentsprófs. Einn lýkur burtfararprófi í vélvirkjun og einn útskrifast úr meistaraskólanum. Þrír ljúka burtfararprófi af sjúkraliðabraut. 29 luku stúdentsprófi af opinni stúdentsbraut, tveir af félagsfræðabraut og 15 af náttúrufræðabraut. Þrír nemendur útskrifast af starfsbraut. Níu ljúka viðbótarnám til stúdents eftir nám í iðngrein.

Dröfn Viðarsdóttir, aðstoðarskólameistari, setti athöfnina og Steinunn Inga Óttarsdóttir skólameistari flutti ávarp. Í því ræddi hún m.a. um hvernig hamingjan er endalaust verk í vinnslu, hvatti til að sleppa símanum og taka afstöðu og taka þátt, mæta á staðinn og gera gagn. Einnig nefndi hún mikilvægi gróskuhugarfars og kom með góð ráð fyrir nemendur út í lífið.

Tónlistarflutningur við athöfnina var í höndum nemenda sem tóku þátt í uppsetningu Leiklistarklúbbsins Melló á Grease, Gígja Kristný Stefánsdóttir söng lagið „Ég sé aldrei eftir því“ og Bergþóra Edda Grétarsdóttir söng lagið „Von og þrá“. Hljómsveit skipaði Hjalti Rafn Kristjánsson á trommum, Ellert Kári Samúelsson á bassa, Pétur Óliver Einarsson og Ákos Koppány Kolcsar á gítar og Flosi Einarsson á hljómborð.

Jóel Þór Jóhannesson flutti ávarp fyrir hönd útskriftarnema þar sem hann þakkaði starfsfólki, foreldrum, samnemendum og ekki síst tækninni fyrir liðin ár, minnti útskriftarnema á að framtíðin er full af tækifærum og hvatti þá til að elta draumana sína og gefast aldrei upp. Björgvin Þór Þórarinsson fyrrverandi nemandi skólans  flutti einnig ávarp þar sem hann hvatti útskriftarnema til að geta séð tækifærin þegar þau birtast, grípa þau og jafnframt ekki festast í langtímamarkmiðum.

Eftirtaldir nemendur fengu verðlaun og viðurkenningar t.a.m. fyrir ágætan námsárangur og störf að félags- og menningarmálum. Nöfn þeirra sem gefa verðlaun eru innan sviga:

  • Agnes Rún Marteinsdóttir hlaut hvatningaverðlaun (Zontaklúbbur Akraness).
  • Andri Steinn Björnsson fyrir góðan árangur í rafiðngreinum (Raf-Pro).
  • Kristján Magnússon fyrir góðan árangur í rafiðngreinum (Raf-Pro).
  • Dagur Smári Pétursson fyrir góðan árangur í rafiðngreinum (Sjammi).
  • Ole Pétur Ahlbrecht fyrir góðan árangur í rafiðngreinum (Norðurál).
  • Thelma Björg Rafnkelsdóttir fyrir ágætan árangur í ensku (Landsbankinn).
  • Þórður Freyr Jónsson fyrir ágætan árangur í ensku (Landsbankinn).
  • Ingibjörg Svava Magnúsardóttir fyrir góðan árangur í spænsku (Rótarýklúbbur Akraness).
  • Íris Rakel Aðalsteinsdóttir fyrir góðan árangur í íslensku (FVA).
  • Sigurjón Jósef Magnússon fyrir góðan árangur í ensku (Íslandsbanki).
  • Daníel Prizginas fyrir góðan árangur í ensku (Íslandsbanki).
  • Dagný Líf Kristófersdóttir fyrir ágætan árangur í þýsku (Elkem).
  • Aníta Hanna Kristjánsdóttir fyrir ágætan árangur í íslensku (FVA).
  • Arnar Gaui Björnsson fyrir góðan árangur í ensku og þýsku (Penninn Eymundsson).
  • Elsa Maren Steinarsdóttir fyrir ágætan árangur í spænsku (FVA) og stærðfræði (Skaginn 3x).
  • Líf Ramundt Kristinsdóttir fyrir góðan árangur í ensku (Tölvuþjónustan), dönsku (danska sendiráðið), íslensku (FVA), sögu (Sögufélag) og fyrir framlag sitt til umhverfismála og alþjóðlegra samskipta (Soroptimistafélagið).
  • Jóel Þór Jóhannesson fyrir ágætan árangur í efnafræði (Efnafræðifélagið), líffræði (Elkem), dönsku (danska sendiráðið), íslensku og þýsku (Akraborg) og fyrir framlag sitt til félagsstarfa (Minningarsjóður Karls Kristins Kristjánssonar). Hann hlaut einnig menntaverðlaun Háskóla íslands sem veitt eru fyrir framúrskarandi árangur í námi auk eftirtektarverða þátttöku í félagslífi.
  • Guðbjörg Bjartey Guðmundsdóttir fyrir frábæran árangur í íslensku (Sjóvá), spænsku (FVA), samfélagsgreinar (FVA), stærðfræði (Stærðfræðifélagið) og íþróttir (FVA). Hún hlaut einnig menntaverðlaun Háskóla Íslands sem veitt eru fyrir framúrskarandi árangur í námi  og eftirtektarverðan árangur í íþróttum. Þá hlaut hún einnig viðurkenningu fyrir góðan námsárangur frá Akraneskaupstað.
  • Elvíra Agla Gunnarsdóttir fyrir framlag sitt til félagsstarfa (Minningarsjóður Karls Kristins Kristjánssonar).
  • Sigrún Egla Unnarsdóttir fyrir framlag sitt til félagsstarfa (Minningarsjóður Karls Kristins Kristjánssonar).
  • Katrín María Ómarsdóttir fyrir framlag sitt til félagsstarfa (Minningarsjóður Karls Kristins Kristjánssonar).
  • Nói Claxton fyrir framlag sitt til félagsstarfa (Minningarsjóður Karls Kristins Kristjánssonar).
  • Indíana Mist Daníelsdóttir, Garðar Máni Ágústsson og Przemyslaw Fiszer hlutu viðurkenningu og hvatningu til áframhaldandi náms úr Minningarsjóði Lovísu Hrundar.
  • Ísak Emil Sveinsson sem útskrifaðist í desember sl. hlaut viðurkenningu úr Minningarsjóði Guðmundar P. Bjarnasonar sem Akraneskaupstaður veitir.

Ole Pétur Ahlbrecht, nýútskrifaður rafvirki, hlaut viðurkenningu skólans fyrir bestan námsárangur með vegna meðaleinkunn 9,53.

Steinunn Inga skólameistari flytur ávarp.
Stór og glæsilegur hópur.
Ole Pétur Ahlbrecht dúx vorið 2024.
Ísak Emil Sveinsson og Guðbjörg Bjartey Guðmundsdóttir hlutu verðlaun frá Akraneskaupstað.