fbpx

Slagorðið í fyrirsögninni var valið fyrir gulan september. Það vísar til samkenndar, þess að láta sig náungann varða og hlúa saman að geðheilsunni.

Við mætum í gulu þriðjudaginn 10. september til að leggja áherslu á alþjóðlegan forvarnardag gegn sjálfsvígum. Í FVA er almennt lögð áhersla á geðrækt og geðheilbrigði, hugarfar grósku, heilsueflingu og gott félagslíf bæði nemenda og starfsfólks. Við virðum samskiptasáttmálann, heilsumst glaðlega og eigum alltaf stund fyrir spjall og samveru. 

Kennarar og starfsfólk í gulu!
Nemendur létu ekki sitt eftir liggja