fbpx

Foreldrum og forráðamönnum nemenda er boðið á kynningarfund í sal FVA þann 12. september nk. kl. 16. Gengið er inn undir bogann sem snýr að Vogabraut og beint inn í sal.

Farið verður yfir það helsta sem brennur á í skólabyrjun. M.a. er kynning á húsnæði skólans, námsframboði, félagslífi og stoðteymi. Nægur tími gefst til umræðna og fyrirspurna. 

La reunion será traducida al español.

Skólanámskrá FVA 2022 er að finna á vef skólans, hér. Hún er rammi utan um skólastarfið.

Foreldrahandbók er hér

Heimavistarreglur eru hér
Skólasóknarreglur eru hér


Öll velkomin – forráðamenn nýnema hjartanlega velkomnir!

Annar fundur verður boðaður bráðlega fyrir forráðamenn sem tala úkraínsku og pólsku.