Góðgerðarfélagið Eynir og Jafnréttisfélagið Bríet afhentu Bjarkarhlíð söfnunarfé að upphæð 260.000 krónur sem safnaðist í vel heppnuðu bingói á vegum félaganna.
Jenný Kristín Valberg teymisstýra Bjarkarhlíðar tók við framlaginu og sagði það munu nýtast vel í starfi þeirra, sem felst meðal annars í að styðja við þolendur ofbeldis og veita mikilvæga ráðgjöf og þjónustu.
Félögin hafa undanfarin ár staðið fyrir fjölbreyttum viðburðum til styrktar góðum málefnum og er þetta enn eitt dæmið um öflugt starf þeirra.