fbpx

Opnir dagar eru í FVA dagana 9. og 10. mars. Á Opnum dögum fellur hefðbundin kennsla niður en nemendur skrá sig á viðburði að eigin vali. Skráning á viðburði hefst í dag kl. 16 á fva.is/opnirdagar.

Fjöldinn allur af frábærum viðburðum í boði, t.d. bingó, fótbolti, golf, rafsuða, tölvuteikning, núvitund, fjöltefli, matargerð, salsa, rennismíði, klifur, lyftingar, ratleikur, crossfit, K-Pop, sjósund, veggjalist. 

SKOÐAÐU VIÐBURÐI OPINNA DAGA HÉR

Flestir viðburðir gefa 1 stig og nemendur þurfa að skrá sig fyrir 4 stigum. Ráðlegt er að passa að velja ekki viðburði sem fara fram á sama tíma.