Stöðupróf í pólsku verður haldið í Kvennaskólanum í Reykjavík, ef aðstæður leyfa, miðvikudaginn 17. mars 2021 klukkan 17:00. Prófið verður í aðalbyggingu skólans að Fríkirkjuvegi 9.
Mest geta nemendur fengið 20 einingar metnar á 15 ein. á 1. þrepi og 5 ein. á 2. þrepi.
Þeir sem vilja fara í prófið þurfa að skrá sig á hér ekki síðar en á hádegi 15. mars.
Prófgjald er kr. 13000 sem greiðist með því að leggja það inn á reikning: 0513-26-14040, kt. 6502760359. Nauðsynlegt er að nafn og kennitala próftaka komi fram á innlegginu. Vinsamlegast sendið afrit af kvittuninni á kvenno@kvenno.is. Athugið að FVA endurgreiðir sínum nemendum prófgjaldið ef nemandi nær 10 eða 20 einingum.
Réttur til próftöku byggist á að prófgjald hafi verið greitt og auk þess verða próftakar að framvísa persónuskilríkjum með mynd þegar komið er í prófið.
Athugið: Minnum á að aðstæður geta breyst með stuttum fyrirvara vegna covid faraldursins.