Námsáætlanir og val
NEMENDUR
STARFSMENN
ÁFANGAR Í BOÐI
Hvað viltu læra á næstu önn?
Um miðbik hverrar annar þurfa nemendur að velja áfanga fyrir næstu önn. Með vali sínu staðfesta nemendur að þeir ætli að stunda nám við skólann á næstu önn.
Opnað verður fyrir val áfanga á haustönn 2024 þann 4. mars og lýkur vali þann 8. mars.
Námsframboð á haustönn 2024 verður kynnt í skólanum 4. mars kl. 14:10-14:50.
Valið fer fram í Innu, þau sem vilja aðstoð við að skrá eða breyta vali geta haft samband við áfangastjóra eða náms- og starfsráðgjöf. Nemendur fæddir árið 2007 fá aðstoð við valið í lífsleiknitíma.
Nemendur sem vilja skipta um braut geta sótt um brautaskipti í INNU.
Nemendur sem stefna á útskrift í desember 2024 eiga að láta vita á skrifstofu skólans.
Á valtímabili er hægt að fylgjast með áfangakynningum hér og á Instagram.
- Listi yfir alla áfanga í boði á haustönn 2024 má finna hér.
- Skoðaðu leiðbeiningar fyrir val á þinni braut hér fyrir neðan.
- LEIÐBEININGAR SÍMI
- LEIÐBEININGAR TÖLVA
VAL haust 2024 - Bóknámsbrautir
Allir nemendur fæddir árið 2007 eiga að velja íþróttir eða afreksíþróttasvið.
Valáfangar í bóklegum og/eða skapandi greinum: Allir áfangar nema íþróttir, leiklist og verklegir áfangar.
Valáfangar í raungreinum, stærðfræði og tölvugreinum á Náttúruvísindabraut:
FORR2GR05 | Forritun – grunnatriði |
LÍFF3ML05 | Líffræði mannsins |
LÍFF3RI05 | Líffræði – ritgerðaráfangi |
LÍOL2SS05 | Líffæra- og lífeðlisfræði |
STJÖ2SH05 | Stjörnufræði |
STÆR3ÞR05 | Stærðfræði – þrívídd og rúmfræð |
Valáfangar í samfélagsgreinum á Félagsvísindabraut:
BÓKF1IN05 | Bókfærsla |
HAGF3ÞJ05 | Hagfræði – þjóðhagfræði |
FÉLA3KR05 | Félagsfræði – kenningar og rannsóknaraðferðir |
FJÁR1FU05 | Fjármálafræði |
SAGA3MM05 | Saga – menningarsaga |
SAGA2SH05 | Síðari heimsstyrjöldin |
SÁLF3FF05 | Sálfræði – fíkn og forvarnir |
STJÓ3ST05 | Stjórnmálafræði |
TÓMS2BU05 | Tómstundafræði |
UPPE2UM05 | Uppeldisfræði |
UPPE3PE05 | Uppeldisfræði – persónulegir erfiðleikar |
Áfangar á Opinni stúdentsbraut, íþrótta og heilsusviði:
FJÚT2FT03 | Fjallamennska og útivist |
ÍÞRF2HB05 | Íþróttafræði – hjarta og blóðrás |
LÍFF2GR05 | Líffræði |
Íþróttir | sjá valáfanga í íþróttum |
LÍFF2GR05 | Grunnáfangi í líffræði |
LÍFF3ML05 | Líffræði mannsins |
LÍOL2SS05 | Líffæra- og lífeðlisfræði |
NÆRI1GR05 | Næringarfræði |
SÁLF2IS05 | Inngangur að sálfræði |
UPPE2UM05 | Uppeldisfræði |
Áfangar á Opinni stúdentsbraut, lista- og nýsköpunarsviði:
LEIK1LE05 | Leiklist |
LJÓS1ÁL05 | Ljósmyndun |
MYNL2GM05 | Myndlist – grunnáfangi |
SAGA2LS05 | Listasaga |
Áfangar á Opinni stúdentsbraut, viðskipta og hagfræðisviði:
BÓKF1IN05 | Bókfærsla |
FJÁR1FU05 | Fjármálafræði |
HAGF3ÞJ05 | Hagfræði –þjóðhagfræði |
STÆR3KV05 | Stærðfræði |
STÆR3FA05 | Stærðfræði |
Áfangar á Opinni stúdentsbraut, alþjóðasviði:
DANS3MM05 | Danska – menning og samfélag |
EVRÓ2BE05 | Evrópa – Berlín |
HAGF3ÞJ05 | Hagfræði – þjóðhagfræði |
ÍSLE3ÍG05 | Íslenskar glæpasögur |
ÍSLE3RS05 | Íslenska – skapandi skrif |
SAGA2LS05 | Saga – listasaga |
SAGA3MM05 | Saga – menningarsaga |
Almennar leiðbeiningar fyrir val á iðnbrautum
Auk áfanga sem hér eru taldir velja nemendur stærðfræði, íslensku, dönsku, ensku, lífsleikni og íþróttir. Fjöldi áfanga og hvaða áfangar nemandi tekur fer eftir námshraða hvers og eins.
Nemendur á iðnbrautum þurfa að fylgja því skipulagi sem hér er lýst ef þeir ætla að ljúka brautinni á jafnmörgum önnum og miðað er við í námskrá.
Stúdentspróf eftir iðnnám
Öllum sem ljúka iðnnámi gefst kostur á viðbótarnámi til stúdentsprófs. Lýsingu á viðbótarnáminu má finna hér:
Nemendur sem ætla að ljúka iðnnámi og stúdentsprófi á 8 til 9 önnum þurfa að skipuleggja nám sitt a.m.k. frá þriðju önn með það fyrir augum að komast áleiðis í bóklegum greinum (eins og íslensku, ensku og stærðfræði) samhliða iðnnáminu. Best er að vinna þetta skipulag í samráði við námsráðgjafa eða áfangastjóra.